Langar þig að gerast sjálfboðaliði á vegum Vigdísar og átt þú gæludýr sem þú telur að henti í verkefnið Lesið fyrir hund?:
Sjálfboðaliði þarf að:
- Sækja undirbúningsnámskeið
- Hafa áhuga á bókalestri
- Ná góðum tengslum við börn
- Hafa tíma
- Hafa hreina sakaskrá
- Vera þolinmóður, skilningsríkur og umburðarlyndur
- Vera félagsmaður Vigdísar
Hundur þarf að:
- Vera tveggja ára eða eldri
- Vera grunnþjálfaður
- Hafa áhuga á samskiptum við fólk á öllum aldri
- Vera sjálfsöruggur
- Vera andlega og líkamlega heilbrigður
- Standast atferlismat og vottun frá Vigdísi
Hægt er að skrá sig til þátttöku í gegnum netfangið hundalestur@hundalestur.is
Námskeiðin eru haldin reglulega. Hvert námskeið er 8 klukkustundir þar sem farið er yfir aðferðafræði í lestrarstundum, úttekt á hundi þar sem mat er lagt á það hvort hundurinn sé tilbúinn í verkefni auk tveggja lestrarstunda undir leiðsögn.
Þátttökugjald greiðist inn á reikning Vigdísar – Vina gæludýra á Íslandi. Innifalið í verði er einnig árs aðild í Vigdísi.