Lesið fyrir hund á Íslandi
Í verkefninu Lesið fyrir hund lesa börn fyrir hund og lestrarliða. Í lestrarstundinni er hundurinn í aðalhlutverki og lestrarliðinn í hlutverki vinar. Áhersla er lögð á að barn lesi sér til skilnings en ekki að texti sé lesinn lýtalaust. Í lok lestrarstundar gefst tækifæri til að ganga úr skugga um lesskilning með því að nýta hundinn, enda gengið út frá því að hundurinn sé í aðalhlutverki sem hlustandi og að barnið sé í hlutverki leiðbeinanda hundsins.
Félagsmiðstöðin Selið á Seltjarnarnesi í samvinnu við Grunnskóla Seltjarnarness byrjuðu með verkefnið „Lesið fyrir hund“ skólaárið 2012-2013 (AAT prógram). Verkefnið hefur gefist mjög vel.
Verkefnið hefur líka verið reglubundið á nokkrum bókasöfnum, má þar nefna Borgarbókasafn Reykjavíkur, Bókasafn Seltjarnarness, Bókasafn Kópavogs, Bókasafn Garðabæjar, Bókasafn Álftaness, Bókasafn Mosfellsbæjar, Bókasafn Hveragerðis (AAA prógram). Þá er börnum boðið að heimsækja safnið á laugardögum og lesa sér til ánægju fyrir hunda sem eru sérstaklega þjálfaðir til að hlusta á börn lesa. Bókasöfnin sjá um að auglýsa lestrarstundina og foreldrar skrá börnin sín í lestrarstund hjá bókasöfnum. Hvert barn fær 20 mínútur í lestur fyrir hund og lestrarliða (eiganda hunds). Við komum með tvö lið (2 hundar og 2 lestrarliðar) þannig að það eru 6 börn sem komast að hverju sinni, þrjú börn á klst. hjá hundi. Bókasöfnin eru oftast með þennan viðburð einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina.
Hægt er að lesa fyrir hunda á bókasöfnum í:
- Kópavogi
- Seltjarnarnesi
- Garðabæ
- Álftanesi
- Mosfellsbæ
- Hveragerði
Skráning fer fram í gegnum bókasöfnin. Sjá má nánari tímasetningu lestrarstunda á heimasíðu bókasafnanna.
Viltu fá verkefnið til þín?
Ert þú stjórnandi bókasafns og vilt fá lestrarverkefnið okkar inn á þitt safn?
Ert þú skólastjórnandi og vilt fá kynningu á lestrarverkefninu okkar í skólann þinn?
Sendu okkur þá línu á tölvupóstfangið: hundalestur@hundalestur.is