Lög
VIGDÍS – Vinir gæludýra á Íslandi
1.gr.
Félagið heitir VIGDÍS– Vinir gæludýra á Íslandi.
2.gr.
Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík.
3.gr.
VIGDÍS – Vinir gæludýra á Íslandi er góðgerðarfélag um gæludýr sem göfga og krydda tilveru okkar mannfólksins með margvíslegum hætti
4. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná þannig: Sjálfboðaliðar og dýr leggja sitt af mörkum til að bæta líf og líðan fólks með ýmsum hætti. Fyrsta verk félagsins er að koma á fót hér á landi lestrarverkefni að bandarískri fyrirmynd, R.E.A.D.® (Reading Education Assistance Dogs) sem reynst hefur sérlega vel til að hvetja börn til yndislesturs og ekki síður til að liðsinna börnum með lestrarerfiðleika, til dæmis fjöltyngdum börnum og lesblindum. Félagið heldur námskeið fyrir sjálfboðaliða, gerir atferlismat á hundum sjálfboðaliða og vottar að þeir henti í verkefni félagsins. Ennfremur heldur félagið kynningarfundi um lestrarverkefnið, meðal annars fyrir skólastjórnendur og kennara sem eftir því óska
5. gr.
Allir þeir sem áhuga hafa á starfsemi félagsins, vinna ekki gegn hagsmunum þess og greiða félagsgjald geta gerst félagsmenn VIGDÍSAR. Stjórnin gerir tillögu að félagsgjaldi og er tillagan afgreidd á aðalfundi. Félagsgjald er innheimt einu sinni á ári. Greiði félagsmaður ekki félagsgjald tvö ár í röð fellur hann út af félagaskrá.
6. gr.
Starfstímabil VIGDÍSAR er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn geta tekið þátt í aðalfundi
7. gr.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. júlí ár hvert og skal boða til hans með minnst þriggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Fundarboð á heimasíðu og/eða með tölvupósti telst nægjanlegt.
Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti fundarmanna ræður úrslitum mála.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar lögð fram
Skýrslur hópa og nefnda
Reikningar lagðir fram til samþykktar
Starfsáætlun og fjárhagsáætlun næsta árs
Lagabreytingar
Ákvörðun félagsgjalds
Kosning stjórnar
Kosning skoðunarmanna reikninga
Önnur mál
8.gr.
Stjórn félagsins skal skipuð fimm félagsmönnum, formanni, ritara, gjaldkera og tveimur meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi. Formaður er kosinn til eins árs og aðrir stjórnarmenn til tveggja ára. Kjörtímabil gjaldkera, ritara og meðstjórnenda skulu skarast. Jafnframt skal kjósa tvo varamenn til eins árs. Á stofnfundi skal kjósa einn meðstjórnanda og ritara til eins árs. Jafnframt skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga. Stjórn skiptir með sér verkum. Stjórn fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda.
Boða skal til aðalfundar með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara. Tillögur að lagabreytingum skulu berast stjórn eigi síðar en 15 dögum fyrir boðaðan aðalfund og þær kynntar á heimasíðu eða vettvangi félagsins á samfélagsmiðlum eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.
Stjórn skal taka saman ársskýrslu um starfsemi og verkefni félagsins fyrir aðalfund og skal hún liggja frammi fyrir félagsmenn. Nefndir og starfshópar sem unnið hafa beint með eða fyrir félagið skulu skila skýrslu/greinargerð um starfsemi sína eigi síðar en 15 dögum fyrir aðalfund. Fundargerð aðalfundar skal vera aðgengileg félagsmönnum á heimasíðu eða samfélagsmiðlum eigi síðar en mánuði eftir aðalfund.
9. gr.
Tveir skoðunarmenn reikninga skulu kosnir til eins árs í senn á aðalfundi.
10. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Reikningar skulu lagðir fram á aðalfundi, yfirfarnir af kjörnum skoðunarmönnum. Hagnaði af rekstri félagsins skal varið í þágu félagsins.
11. gr.
Félagsslit skulu rædd á aðalfundi eða aukaaðalfundi og þarf 2/3 félagsmanna til að samþykkja félagsslit. Við félagsslit skulu eignir félagsins flytjast með félaginu ef um sameiningu við annað félag er að ræða, annars til líknarmála sem stjórnin leggur til.
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi í Reykjavík 19. júní 2013.
Birt með breytingum á lögum sem samþykktar voru á aðalfundi 30. júní 2024 og á aðalfundi 5. maí 2025 með fyrirvara um innsláttarvillur.
Eftirtaldir voru kjörnir í stjórn samtakanna á stofnfundi:
Formaður til eins árs: Margrét Sigurðardóttir. Kennitala: 250965-4279
Ritari til eins árs: Brynja Tomer. Kennitala: 010163-7579
Gjaldkeri til tveggja ára: Sigríður Bílddal. Kennitala: 230853-2829
Meðstjórnandi til eins árs: Sóley Ragna Ragnarsdóttir. Kennitala: 310196-2159
Meðstjórnandi til tveggja ára: Arndís B. Sigurgeirsdóttir. Kennitala: 111060-5099
