Hvernig gerist ég lestrarliði

Hvernig gerist ég lestrarliði?

Hægt er að nálgast upplýsingar um næstu námskeið á heimasíðu okkar www.hundalestur.is og skrá sig. Einnig er hægt að skrá sig á biðlista og þá sendum við þér upplýsingar þegar næstu námskeið liggja fyrir.

Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið okkar hundalestur@hundalestur.is

Hentar þetta verkefni hundinum þínum?

Til þess að verða lestrarhundur þarf hundurinn þinn að uppfylla ákveðin skilyrði:

•Hundur þarf að vera orðinn tveggja ára

•Stærð, feldgerð eða tegund skiptir engu máli

•Hundurinn þarf að vera öruggur í ólíkum aðstæðum

•Hundurinn þarf að vera rólegur innan um aðra hunda og eiga auðvelt með að slaka á

•Í lok námskeiðs fer fram mat á hundi og ennfremur mat á tengslum eiganda og hunds