Stjórn Vigdísar

Vigdís – vinir gæludýra á Íslandi var stofnað 19. júní 2013 af hópi áhugafólks í þeim tilgangi að vinna READ verkefninu brautargengi á Íslandi.

Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á að nærvera hunda hefur góð áhrif á fólk, jafnt unga sem aldna. Þá hefur verið sýnt fram á að börnum finnst yfirleitt auðveldara og skemmtilegra að lesa fyrir hund en foreldra eða kennara.

Rannsóknir hafa leitt í ljós að lestraráhugi eykst hjá börnum sem lesa reglulega fyrir hunda og sumar rannsóknir hafa jafnframt sýnt fram á aukinn lesskilning og bætta lestrargetu þessara barna.

Það sem mestu máli skiptir er sú ótvíræða niðurstaða að börnunum líður vel og þau njóta þess að eiga þessa sérstöku stund með hundinum (og eiganda hans).

Stjórn

Stjórn Vigdísar – Vina gæludýra á Íslandi var kosin á aðalfundi 7. maí 2026:

  • Sigrún Huld Auðunsdóttir, formaður
  • Sigríður Bílddal, Gjaldkeri
  • Brynja Tomer, ritari
  • Guðrún Inga Blandon, meðstjórnandi
  • Kristín Ísleifsdóttir, meðstjórnandi

Varamenn stjórnar:

  • Erna Matthíasdóttir
  • Guðbjörg Guðmundsdóttir

Skoðunarmenn reikninga:

  • Gyða Guðjónsdóttir
  • Margrét Sigurðardóttir

Ársskýrslur

Ársskýrsla 2025

Ársskýrsla 2024